Collection: Hjallastefnan - Vesti

Hjallastefnan hefur unnið að því að stíga stór umhverfisskref í fatamálum og er framtíðarstefna Hjallastefnunnar að vinna með fyrirtækjum sem sérhæfa sig í umhverfisvænni framleiðslu og eru samfélagslega ábyrg.

New Wave Iceland er partur af New Wave Group sem setur áherslu á viðskiptalausnir sem eru félagslega og umhverfislega sjálfbærar og mikilvægt að innleiða það inn í daglegan rekstur. Í því felst til dæmis að bæta vinnuskilyrði í framleiðslukeðjunni, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og innleiða vistvæn og umhverfisvæn efni.

Hjallastefnan hefur valið eftirfarandi flíkur sem mæta stöðlum Hjallastefnunnar varðandi liti, umhverfisvæna framleiðslu og þægindi og hentugleika við vinnu. Þessar vörur ættu því að henta vel fyrir flest alla en ef óskir eru um aðrar vörur er hægt að senda póst á fyrirspurn@newwave.is, hringja í síma 520-6020 eða mæta á staðinn til okkar og fara yfir hvaða aðrar vörur eru í boði miðað við staðla Hjallastefnunnar.

Þegar þið leggið inn pöntun veljið þið "Millifærslu" sem greiðslumáta og við sendum reikning á viðeigandi aðila og reikningur stofnast í heimabanka.